Auglýsing

Styrktaraðilar

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands

Saffran veitingahús

Hreysti

World Class Iceland

Skylmingasamband Íslands

Hummel á Íslandi

elin.is Rope Yoga setur

Atburðarteljari

Um mig:

Þorbjörg Ágústsdóttir skylmingakona bloggar um ferðir sínar um heimin, æfingar, kennslu og margt fleira!

Fylgist líka með á fésbókinni :)

Tobba

  • Nafn: Þorbjörg Ágústsdóttir
  • Netfang: thorbjorg.agustsdottir@gmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Símanúmer: 8497171

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

England Trophy 24.-25. febrúar

22. febrúar 2012 klukkan 18:05
Næsta heimsbikarmót er núna um helgina í Bretlandi. Keppnin kallast England Trophy og fer fram föstudag og laugardag í Crystal Palace í London. Ekki besti keppnisstaðurinn þar sem það er sundlaug í sama opna rými og við keppnum í, bara með hálfveggjum á milli... Svo það er dálítið rakt þarna! En ég hlakka bara til! Vonandi gengur vel - það verður í það minnsta gaman að sjá hvening gengur núna eftir gott gengi á síðasta móti. Endilega sendið mér góða strauma á föstudaginn milli kl 14-17 :D

Ég tognaði lítillega í læri síðastliðinn laugardag og er því ekkert búin að æfa í vikunni. Það var tvísýnt með mótið en sjúkraþjálfarinn gaf grænt ljós í dag og ég fæ því að keppa. Það borgar sig greinilega að sofa og sofa (og sofa aðeins meir) til að láta sér batna ;)

Hér er heimasíða mótsins:
http://www.britishfencing.com/news/latest-news/?n=495
Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Sprell í íþróttaþættinum 360°

15. febrúar 2012 klukkan 23:24
Ég er með í íþróttaþættinum 360° í Ólympíulágmarkinu, þar sem íþróttafólk bregður á leik og gerir sig að fíflum!

Fyrir áhugasama þá er hér línkur á síðasta þátt:
http://www.ruv.is/sarpurinn/360-gradur/14022012

Fylgjast má með þessu sprelli næstu fjóra þriðjudaga. Hver veit nema Tobbu haldi áfram að bregða fyrir :P
Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Náði markmiði mínu að komast í 64. manna en tókst ekki að vinna rússan og komast í 32. manna úrslit.

15. febrúar 2012 klukkan 23:13
Mér tókst ekki að vinna rússann :( þetta voru ágætar skylmingar hjá mér samt en ég hefði átt að sækja meira á hana, þ.e. geira meiri árás en að vera með varnar taktík. Bardaginn endaði 15-8 fyrir henni. Mér fanst vera tvo stig sem ég átti og dómarinn gaf henni þó ég bæði um endurskoðun í video; svo var ég líka óheppin tvisvar. Það gera fjögur stig -hvert stig breytir dýnamíkinni í bardaganum... Ég komst því ekki í 32 manna úrslit en náði markmiði mínu að komast á 64 manna úrslitin á fyrsta GP heimsbikarmóti ársins.

Hér eru úrslitin frá mótinu:
http://fie.ch/Competitions/ResultsList.aspx?Key=EF5FC67B899065E8BB7035B64BB8A705

Ég endaði í 51. stæti af 135 keppendum. Ágætt bara :) Eftir riðlana var ég nr 49 sem þýðir þá að tveir fyrir neðan mig unnu sían bardaga í 64 manna fyrst ég færist niður um 2 sæti.

Næsta mót er í London 24.-25.febrúar. Ég verð við æfingar hér heima fram að því. Mikilvægt er að vinna úr reynslu æfingabúðanna í Póllandi og Frakkalndi og svo auðvitað mótsins með Nikolay þjálfaranum mínum. Þannig að nú verður unnið enn meira í þolinmæðinni og ákveðnum taktístum atriðum fram að næsta móti.

Hér eru nokkrar myndir frá mótinu:

P1050501.JPG

Ég og Nikolay

P1050504.JPG

Ég og Sandra Sassine frá Kanada

P1050502.JPG

 

P1050506.JPG

Ég og bresku vinkonur mínar, Jojo og Angela.

 


Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Komin í 64 manna úrslit í Orelans :D

10. febrúar 2012 klukkan 17:41
Það tókst!
Ég skylmdist alveg rosaleg vel! Hrikalega ánægð með mig!

Ég er komin í 64 manna úrslit á GP heimsbikarmótinu í Orleans :D Skylmdist frábærlega! Ég vann 4 af 6 bardögum í riðlinum og alla þá bestu! Ég hefði geta unnið alla í riðlinum -ég skylmdist eins og vindurinn. En tapað tveimur bardögum af skyndilegri óþolinmæði. En á heildina voru þetta mjög góðar skylmingar og bæði ég og þjálfarinn erum mjög ánægð með árangurinn. Það var mjög gott að hafa þjálfarann með sér á mótinu.

Til að komast í 64 manna þurfti ég líka að vinna mjög sterka bandaríska stelpu sem keppir fyrir Panama. Það tókst! Ég var í vanræðum framan af leiknum, staðan var 5-1 fyrir henni þegar mér tókst að snú við blaðinu. Staðan var 8-7 fyrir mér í hálfleik og svo vann ég 15-10 :D Tær snilld! Á morgun mæti ég svo sterkri rússneskri stelpu, Egorian. Mér hentar ágætlega að skylmast við rússana og hlakka bara til morgundagsins. Það eru annars allir á þessu móti og öll stóru löndin eru með fullan kvóta af keppenum, þ.e. átta talsins per land. Í heild eru 135 keppendur á mótinu. Þannig að meira en helmingurinn er út eftir fyrsta daginn. Mér tókst það og er áfram á morgun og fæ stig á heismlista! jeij!!

Góðar skylmingar og bónusinn að vinna! Eðal!

Ég þakka góðar hugsanir í minn garð í dag fébókar skilaboð undanfarna daga. Ég vona að þið haldið áfram að senda mér góða strauma á mogun :*

Heimasíða mótsins - fylgist með!
http://www.fencingworldwide.com/WAFechten/fechten/frameset.jsp
Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Riðlakeppnin komin

10. febrúar 2012 klukkan 09:24
Búið er að birta riðlana:

http://www.escrime-orleans.org/public_html/public_html/index.php?option=com_wrapper&view=wrapper&Itemid=296

Hér er hægt að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu frá því kl 13 að frönskumtíma (12 að íslsnskum tíma):

http://www.fencingworldwide.com/WAFechten/fechten/frameset.jsp
Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd

GP heimsbikarmót í Orléans

09. febrúar 2012 klukkan 16:14
Nú er komið að fyrsta heimsbikramóti Ólympíuársins 2012. Þetta er GP mót og gefur fleiri stig en venjulegt heimsbikarmót. Þetta er gríðarlega sterkt mót og öll keppnis hótelin full! Ég er enn að bíða eftir að sjá riðilinn minn en keppnin byrjar kl 13 á morgun að frönskum tíma. Sendið mér góða strauma! Keppendur verða um 160 talsins! Risa mót sem sagt.

Ég er búin að vera í París í vikunni að æfa. Ég fékk að æfa með landsliðinnu í frábærri aðstöðu þeirra í INSEP (http://www.insep.fr/FR/Sports/Escrime/Pages/sport.aspx) og í klúbbnum US Metro. Æfingarnar gengu bara vel og ég hlakka til að keppa á morgun. Ég hefði þó auðvitað verið til í að vera hér lengur að æfa. Það skiptir gríðarlegu máli að fá að skylmast við fleiri og í öðru tempói.

Sendið mér góða strauma til Orléans!

Hér koma nokkrar myndir frá l'INSEP:



Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Leiðin á leikana -Saffran styrkir afreksfólk

30. janúar 2012 klukkan 23:05
Saffran styrkir afreksfólk í íþróttum :D Frábært framtak hjá Saffran!

Við erum sex sem verðum á styrk hjá þeim fram að ÓL.

Ásdís Hjálms, spjótkastari
Kári Steinn maraþonhlaupari,
Ragna badminton,
Ragnheiður sundkona
Jakob Jóhann sundmaður
og ég :)

Saffran ættlar að gera rétti að okkar smekk og setja á matseðilinn. Mér finnst það skemmtileg tilbreyting við hin hefðbunda matseðil Saffran. Aðsjálfsögðu verður minn réttur fiskréttur!

Hér er brot úr sjónvarpsfréttunum frá blaðamannafundinum á Saffran:
http://www.ruv.is/sarpurinn/frettir/30012012/tveir-islendingar-komnir-a-ol


Kærar þakkir fyrir stuðninginn Saffran!











Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd

ÍSÍ 100 ára

27. janúar 2012 klukkan 13:36
Íþrótta- og Ólympíusamband Ísanlds er hundrað ára á morgun! Að því tilefni var þátturinn Samfélagið í nærmynd á Rás 1 helgaður ÍSÍ og hundrað ára afmælinu. Þar var talað við starfsfólk ÍSÍ á meðal annars almennings- og afreksíþróttasviði, Ellert Scram og ýmsa fleiri -þar á meðl mig! Þeir sem vilja hlusta klikka bara á linkinn:
http://www.ruv.is/frett/innlent/isi-100-ara-28-januar-2012

Þetta var bara nokkuð góður og fróðlegur þáttur. Starfsmenn ÍSÍ og RÚV ættla í kjölfarið að koma og prófa skylmingar hjá mér í Laugardalnum :D



Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd

Saffran styrkir afreksíþróttafólk -leiðin á leikana

25. janúar 2012 klukkan 19:11

Saffran styrkir íslenska Ólympíufara

Veitingastaðurinn Saffran hefur gert styrktarsamning við íslenskt afreksfólk sem undirbýr sig nú fyrir Ólympíuleikana í London sumarið 2012. Samningurinn verður kynntur á Saffran, Dalvegi 4, á mánudaginn 30. janúar kl. 15:00.
 
Ólympíufararnir sem verða viðstaddir ásamt fjölskyldu og vinum eru:
 
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari
Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður
Kári Steinn Karlsson, hlaupari
Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona
Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona
Þorbjörg Ágústsdóttir, skylmingakona
 
Næstu vikur og mánuði munu þau flakka heimshorna á milli til að sækja æfingabúðir og keppa á íþróttamótum í aðdraganda Ólympíuleikanna. 

http://www.pressan.is/frettir/lesafrett/saffran-styrkir-islenska-olympiufara-

ALLIR velkomir sem vilja :D
Þorbjörg Ágústsdóttir
1 athugasemd

Góðar æfingabúðir í Spala í Póllandi

25. janúar 2012 klukkan 19:07
Frábærar æfingabúðir í Póllandi :D 11 góðar æfingar á 7 dögum og nokkrar sauna ferðir líka. Virkilega gaman og gagnlegt að æfa með breska og pólaska landsliðinu. Allt var mjög vel skipulagt hjá pólverjunum og góður andi í skylmingasalnum. Við skylmdumst æfingabardaga, kepptum okkar á milli í einstaklings- og liðakepnni auk þess að gera ýmsar taktískar æfingar. Þetta eru með betri æfingabúðum sem ég hef farið í, sérstaklega vegna góðs skipulgas og fjölbreyttra skylmingamanna. Einnig var þarna frábær þjálfari úr frjálsum sem gerði með okkur dýnamíska upphitun og samhæfingar æfingar auk tveggja sprettæfinga. Algjörlega frábær kall með risastór grátt yfirvaraskegg!


Stór og flottur skylmingasalur.

Ég og Crystal Nicoll úr breska liðinu í skylmingasalum í Spala.


Þessar æfingabúðir verða vonandi góður stökkpallur fyrir heimsbikarmótið í Orleans. Næstu 10 daga verð ég á Íslandi að vinna með þjálfaranum mínum Nikolay Mateev til að fínpússa allt. Það verður gott að stilla sig af og vinna með þá reynslu sem ég tek með mér úr þessum æfingabúðum.

Dagatal með pólska junior kvenna sabre liðinu.

Allir að fara í skuttluna.

Anglea fyrir utan hótelið okkar.



Maturinn í Póllandi var líka óvænt mjög góður. Þeir gera góðar súpur og góða svína- og nautakjötsrétti og bara frekar holt ef maður sleppti því sem var brasað. Hér er mynd af pirogi sem er líka hrikalega gott og mjög pólskt. Gaman þegar önnur menning kemur manni skemmilega á óvart.



Þorbjörg Ágústsdóttir
Engin athugasemd