04. apríl 2012 klukkan 18:20
Þorbjörg Ágústsdóttir
29. mars 2012 klukkan 19:15
Þá er komið að því. Saffran herferð Tobbu hófst í dag! Heferð Saffran heitir Leiðin á leikana og styrkir Saffran sex afreksíþróttamenn fram að ÓL og þar á meðl mig :) Rétturinn min verður til sölu 29. mars til 12. apríl og 100 kr af hverjum seldum rétti renna til mín. Rétturinn minn er sítrusmarineruð bleikja með sætkarftöflumús, byggi, salati og dill- hvítlaukssósu. Hollt og gott :D
Ég er stolt af því að fá að taka þátt í verkefninu og það hefur verið gaman að vinna að þessu. Frábært framtak hjá Saffran. Ég þakka þeim kærlega fyrir að hafa trú á mér. Ég vil líka þakka starfsfólki Saffran í Glæsibæ fyrir góða þjónustu og almennilegheit.
Hér getið þið séð frábært skylmingamyndband -búið til fyrir herferðina. Mjög kúl verð ég að segja. Flott grafík, áferð, saga og flæði. Það eru snillingarnir Davíð Gill Jónsson og Baldur Kristjánsson sem gerðu myndbandið.
http://leidin.saffran.is/thorbjorg/
Mana þá sem þora að koma og prófa skylmingar!
Þorbjörg Ágústsdóttir
29. mars 2012 klukkan 18:52
Jæja þá er ég komin aftur til Póllands. Ég var svo heppin að pólska liðið bauð mér aftur að æfa með sér eftir gott gegni mitt á GP heimsbikarmótinu í Orleans í febrúar og nú er sem sagt ég komin aftur. Mér líkar vel hérna og allir eru vinsamlegir. Ég kom til Varsjá í dag en engin taska!! Hrikalegt! Þeir höfuðu eingar upplýsingar um hana í marga klukkutíma en ég er nýbúin að frétta að hún komi með flugi á miðnætti. Þannig að fæ hana í fryrramálið. Rétt passlega því ég verð sótt af skylmingamönnunum frá Varsjá og við keyrum svo öll til Spala sem er um 2 klst akstur. Pólverjarnir eru að undirbúa HM í liðakeppni með þessum æfingabúðum en ég æfi mig fyrir úrtökumótið. Þessar æfingabúðir eru hluti af loka undirbúningi mínum fyrir úrtökumótið.
Þorbjörg Ágústsdóttir
29. mars 2012 klukkan 18:27
Úrtökumótið fyrir Ólympíuleikana verður 21-22. apríl í Bratisalva. Eftir fjögur fyrstu heimsbikarmótin var ég valin til að keppa á úrtökumótinu. Hilmar Jónsson keppir einnig á mótinu í karlaflokki. Það er bæði gaman og stressandi hvað er stutt í þetta! Fiðrildi í maganum... Við verðum um það bil 12 stelpur um fjögur laus sæti inná ÓL í London í sumar. Snedið mér góða strauma :*

Þorbjörg Ágústsdóttir
07. mars 2012 klukkan 14:59
Fylgist líka með sprellinu í 360° á RÚV.
Undanúrslitin voru í gær þriðjudag þar sem þrautin var að hitta 3 bortennsikúlum í skál. Í næstu viku verða úrslitin og innslag þar sem ég kenni Jóni Jónssyni í gula gallanum skylmingar. Tékkið á þessu - þetta verður frekar fyndið.Hér er linkurinn á síðasta þátt:
http://www.ruv.is/sarpurinn/360-gradur/06032012
Þorbjörg Ágústsdóttir
07. mars 2012 klukkan 14:52
Jæja, lærið er orðið gott og ég búin að geta æft á fullu síðan á mótinu í London. Næsta heimsbikarmót verður haldið 9.-10. mars í Antalya í Tyrklandi. Þessi færsla er skrifuð á flugvellinum í Stokkhólmi meðan ég bíð eftir tengiflugi til Istnabúl. Ég og Nikolay þjálfarinn minn verðum í Antalya að æfa með öðrum landsliðum (GBR, GER, USA, JAP....) til 14. mars en þá fljúgum við til Moskvu þar sem ég keppi á Grand Prix heimsbikarmóti 16.-17.mars. Ég hlakka bara mikið til þó það sé nokkur fiðrildi að flögra í magnaum.
Sendið mér góða strauma - takk fyrir að fylgast með
Þorbjörg Ágústsdóttir
22. febrúar 2012 klukkan 18:05
Næsta heimsbikarmót er núna um helgina í Bretlandi. Keppnin kallast England Trophy og fer fram föstudag og laugardag í Crystal Palace í London. Ekki besti keppnisstaðurinn þar sem það er sundlaug í sama opna rými og við keppnum í, bara með hálfveggjum á milli... Svo það er dálítið rakt þarna! En ég hlakka bara til! Vonandi gengur vel - það verður í það minnsta gaman að sjá hvening gengur núna eftir gott gengi á síðasta móti. Endilega sendið mér góða strauma á föstudaginn milli kl 14-17 :D
Ég tognaði lítillega í læri síðastliðinn laugardag og er því ekkert búin að æfa í vikunni. Það var tvísýnt með mótið en sjúkraþjálfarinn gaf grænt ljós í dag og ég fæ því að keppa. Það borgar sig greinilega að sofa og sofa (og sofa aðeins meir) til að láta sér batna ;)
Hér er heimasíða mótsins:
http://www.britishfencing.com/news/latest-news/?n=495
Þorbjörg Ágústsdóttir
15. febrúar 2012 klukkan 23:24
Ég er með í íþróttaþættinum 360° í Ólympíulágmarkinu, þar sem íþróttafólk bregður á leik og gerir sig að fíflum!
Fyrir áhugasama þá er hér línkur á síðasta þátt:
http://www.ruv.is/sarpurinn/360-gradur/14022012
Fylgjast má með þessu sprelli næstu fjóra þriðjudaga. Hver veit nema Tobbu haldi áfram að bregða fyrir :P
Þorbjörg Ágústsdóttir
15. febrúar 2012 klukkan 23:13
Mér tókst ekki að vinna rússann :( þetta voru ágætar skylmingar hjá mér samt en ég hefði átt að sækja meira á hana, þ.e. geira meiri árás en að vera með varnar taktík. Bardaginn endaði 15-8 fyrir henni. Mér fanst vera tvo stig sem ég átti og dómarinn gaf henni þó ég bæði um endurskoðun í video; svo var ég líka óheppin tvisvar. Það gera fjögur stig -hvert stig breytir dýnamíkinni í bardaganum... Ég komst því ekki í 32 manna úrslit en náði markmiði mínu að komast á 64 manna úrslitin á fyrsta GP heimsbikarmóti ársins.
Hér eru úrslitin frá mótinu:
http://fie.ch/Competitions/ResultsList.aspx?Key=EF5FC67B899065E8BB7035B64BB8A705
Ég endaði í 51. stæti af 135 keppendum. Ágætt bara :) Eftir riðlana var ég nr 49 sem þýðir þá að tveir fyrir neðan mig unnu sían bardaga í 64 manna fyrst ég færist niður um 2 sæti.
Næsta mót er í London 24.-25.febrúar. Ég verð við æfingar hér heima fram að því. Mikilvægt er að vinna úr reynslu æfingabúðanna í Póllandi og Frakkalndi og svo auðvitað mótsins með Nikolay þjálfaranum mínum. Þannig að nú verður unnið enn meira í þolinmæðinni og ákveðnum taktístum atriðum fram að næsta móti.
Hér eru nokkrar myndir frá mótinu:

Ég og Nikolay

Ég og Sandra Sassine frá Kanada


Ég og bresku vinkonur mínar, Jojo og Angela.
Þorbjörg Ágústsdóttir
10. febrúar 2012 klukkan 17:41
Það tókst!
Ég skylmdist alveg rosaleg vel! Hrikalega ánægð með mig!
Ég er komin í 64 manna úrslit á GP heimsbikarmótinu í Orleans :D Skylmdist frábærlega! Ég vann 4 af 6 bardögum í riðlinum og alla þá bestu! Ég hefði geta unnið alla í riðlinum -ég skylmdist eins og vindurinn. En tapað tveimur bardögum af skyndilegri óþolinmæði. En á heildina voru þetta mjög góðar skylmingar og bæði ég og þjálfarinn erum mjög ánægð með árangurinn. Það var mjög gott að hafa þjálfarann með sér á mótinu.
Til að komast í 64 manna þurfti ég líka að vinna mjög sterka bandaríska stelpu sem keppir fyrir Panama. Það tókst! Ég var í vanræðum framan af leiknum, staðan var 5-1 fyrir henni þegar mér tókst að snú við blaðinu. Staðan var 8-7 fyrir mér í hálfleik og svo vann ég 15-10 :D Tær snilld! Á morgun mæti ég svo sterkri rússneskri stelpu, Egorian. Mér hentar ágætlega að skylmast við rússana og hlakka bara til morgundagsins. Það eru annars allir á þessu móti og öll stóru löndin eru með fullan kvóta af keppenum, þ.e. átta talsins per land. Í heild eru 135 keppendur á mótinu. Þannig að meira en helmingurinn er út eftir fyrsta daginn. Mér tókst það og er áfram á morgun og fæ stig á heismlista! jeij!!
Góðar skylmingar og bónusinn að vinna! Eðal!
Ég þakka góðar hugsanir í minn garð í dag fébókar skilaboð undanfarna daga. Ég vona að þið haldið áfram að senda mér góða strauma á mogun :*
Heimasíða mótsins - fylgist með!
http://www.fencingworldwide.com/WAFechten/fechten/frameset.jsp
Þorbjörg Ágústsdóttir