Ég náði markmiðinu mínu á HM 2010! Ég komst í 64. manna úrslit og skylmdist í Grand Palais :) Það voru 112 keppendur í mínu vopni á mótinu. Ég er mjög ánægð með skylmingarnar mínar :) Með rólegum og réttum undirbúningi virkaði taktíkin mín mjög vel. Ég finn miklar framfarir hjá mér í leikstjórnun og mér fannst frábært að hafa Nikolay þjálfarann minn með á mótinu. Ég er vön að vera bara ein eða tvær stelpur saman (vegna fjárskorts). Núna var Nikolay með okkur allan tímann. Frábært að fá einkatíma í upphitun og að hafa einhvern á hliðarlínunni -það er mjög mikilvægt! Í Grand Palais var skylmdist í úrslitakeppninni. Þetta er rosalega flott bygging á Champs-Elysées sem var byggð fyrir heimssýninguna í París árið 1897. Ég skylmdist við Bianco frá Ítalíu, hún er nr. 6 á heimslistanum -og ég var betri en hún! Ég skylmdist mjög vel og var yfir í hálfleik. Eftir hálfleik breytti hún um taktík og ég fór að flýta mér aðeins í lokin. Bardaginn var mjög góður og jafn upp í 11 stig. Þá gerði ég þrjú ódýr mistök og hún vann mig 15-11. Fúllt!! EN ég er samt mjög ángæð með skylmingarna mínar! Gott fyrir sjálfstraustið og næst er bara að trúa því í botn að hægt sé að rústa þessum bestu, halda haus og sínu plani allt til enda!
Nú er bara að nota þennan stökkpall til að hækka sig ennfrekar á heimslistanum!
Ég er komin í 64. manna úrslit!!! :D OG skylmist því á morgun í Grand Palais!!! Ég er númer 59. inn og fæ því nr. 5 á heimslista Bianco frá Ítalíu. Það verður gaman!
Ég skylmidist vel í riðlunum. Vann 3, tapaði 3. Ég ég hefði verði enn yfirvegaðri þá hefði ég náð öllum bardögunum. Tapaði einum naumlega 5-4. En ég er sátt við skylmingarnar. Svo skylmdist ég í 128 manna úrslitum til að komast í 64 manna -við Besbes frá Túnis -og ég rústaði henni!!!!!! Hún er góð og æfir í París. Ég var mjög ánægð með skylmingarnar mínar-var róleg og yfirveguð, tók réttar ákvarðanir og fylgdi þeim eftir! Bardaginn fór 15-11 fyrir mér! :D Gleði!! Nú er bara að taka ítalann!
HM byrjaði í gær með riðlakeppni í epée kvenna, sabre karla og foil karla. Ísland átti einn fulltrúa í saber karla, Ragnar Inga Sigurðsson. Ragnar skylmdist vel í riðlunum og komst árfram eftir niðurskurðinn :) Ragnar Ingi fékk svo Tyrkneskan adstæðing í útsláttarkeppninni til að komast í 64. manna úrslit (sem gefa stig á heimslista). Því miður náði Ragnar sér ekki á strik í þeim bardaga þrátt fyrir góða riðlakeppni.
Ég og Gunnhidlur keppum núna á eftir kl 13:45 í riðlakeppni í sabre kvenna! Hugsið til okkar og sendið góða strauma! Þetta er mjög stórt mót-við erum 112 stelpur í sabre kvenna! Í dag er svo líka keppt í riðlakeppni í epée karla og foil kvenna. Utsláttar keppnin frá 64 manna í sabre kvenna og karla fer svo fram á laugardaginn í Grand Palais í París. Hér þarf að berjast um hvert einasta stig! Þetta er svo stór og hörð keppni-enda HM ;)
Ég er spennt og hlakka til að keppa -þetta verður gaman! Markmiðið er að komast vel uppúr riðlunum og skylmast svo í Grand Palais í utsláttarkeppninni.
jaeja, nù er èg bùin ad vera aefa ì Parìs ì viku. Gòdar aefingar-og alveg naudsynlegt ad komast ì svona umhverfi og aefa tar sem standardinn er svona hàr. Mest er èg bùin ad vera aefa med frokkum en à fostudaginn og ì fyrramàlid verdur aefing med Japan og Venesùela :D Snilld Nù er farid ad styttast ì mòtid (HM hvorki meira nè minna!)-èg keppi à fostudaginn 5.nòv ì ridlakeppninni!
Annars er Ragna badmintonsnillingur ad fara keppa ì Parìs lìka-skemmtileg tilviljun!
Nù er èg komin til Parìsar! Fyrsta aefingin var i gaer. Fràbaert ad geta skylmst vid fleiri og pròfqd taekni og taktìk :) Aefingin gekk bqrq vel-tò èg vaeri svolìtid treytt eftir flugid. Ì gaer var aeft ì Racing Club de Frace en ì kvod verdur aefingin i US metro klubbnum. Her aefi eg bara einu sinni a dag en nota timann a daginn til ad vinna sma, studea skylmingavideo og gera einbeitigar aefingar-fyrir utan ad njota tess ad vera ì Parìs.
Bæði Stöð 2 og RÚV eru að fara í loftið með nýja íþróttaþætti. Skylmingar er geinilega það heitasta, því í báðum þáttumum verða skylmingar-í fyrsta þætti! Magnað! Stöð 2 sport á laugardaginn og RÚV á þriðjudaginn. Tékkið á þessu!
Miðvikudagar eru massífir æfingadagar. Einn ansi góður í dag. Í morgun var það þrekæfing í Laugum. Ragna badminton er úti að keppa svo ég var bara ein í dag. Kl 17:15-18:00 var einkatími hjá Nikolay. Núna kl 19 er svo skylmingaæfing. Það gera samtals rúmlega 4 klst af æfingum í dag. Einkatíminn var góður. Ég er ánægð hvað ég hef náð að bæta fjarlægðarsjórnunina og flæðið hjá mér. Ég þarf bara að vinna meira með þolinmæðina í stigunum. Í kvöld er planið hjá mér að æfa þolinmóðar árásir og second intetion stig. Núna er bara smá tjill í tölvunni yfir ávöstum og skylmingavideoum.
mmm....mjög góður hádegismatur hjá Saffran! Tandorikryddaður karfi með brúnum grjónum og salati :P Hollur og góður matur sem kemur mér í gegnum daginn. Matarræði er mjög mikilvægt með ströngu æfingarprógrammi. Endilega prófið Saffran-eðalmatur.
HM í skylmingum fer fram í París 4.-13. nóvember. Ég keppi 4. nóvember í riðlakeppninni og 6.nóvember í útsláttakeppninni ef ég kemst í gegnum niðurskurðinn -sem ég ættla mér! Ísland keppir ekki í liðakeppni að þessu sinni. Ég fer út 24. október til að æfa í París í gamla klúbbinum mínum Racing Club de Frannce. Það verður gaman!