22. febrúar 2012 klukkan 18:05
Næsta heimsbikarmót er núna um helgina í Bretlandi. Keppnin kallast England Trophy og fer fram föstudag og laugardag í Crystal Palace í London. Ekki besti keppnisstaðurinn þar sem það er sundlaug í sama opna rými og við keppnum í, bara með hálfveggjum á milli... Svo það er dálítið rakt þarna! En ég hlakka bara til! Vonandi gengur vel - það verður í það minnsta gaman að sjá hvening gengur núna eftir gott gengi á síðasta móti. Endilega sendið mér góða strauma á föstudaginn milli kl 14-17 :D
Ég tognaði lítillega í læri síðastliðinn laugardag og er því ekkert búin að æfa í vikunni. Það var tvísýnt með mótið en sjúkraþjálfarinn gaf grænt ljós í dag og ég fæ því að keppa. Það borgar sig greinilega að sofa og sofa (og sofa aðeins meir) til að láta sér batna ;)
Hér er heimasíða mótsins:
http://www.britishfencing.com/news/latest-news/?n=495
Þorbjörg Ágústsdóttir
15. febrúar 2012 klukkan 23:24
Ég er með í íþróttaþættinum 360° í Ólympíulágmarkinu, þar sem íþróttafólk bregður á leik og gerir sig að fíflum!
Fyrir áhugasama þá er hér línkur á síðasta þátt:
http://www.ruv.is/sarpurinn/360-gradur/14022012
Fylgjast má með þessu sprelli næstu fjóra þriðjudaga. Hver veit nema Tobbu haldi áfram að bregða fyrir :P
Þorbjörg Ágústsdóttir
15. febrúar 2012 klukkan 23:13
Mér tókst ekki að vinna rússann :( þetta voru ágætar skylmingar hjá mér samt en ég hefði átt að sækja meira á hana, þ.e. geira meiri árás en að vera með varnar taktík. Bardaginn endaði 15-8 fyrir henni. Mér fanst vera tvo stig sem ég átti og dómarinn gaf henni þó ég bæði um endurskoðun í video; svo var ég líka óheppin tvisvar. Það gera fjögur stig -hvert stig breytir dýnamíkinni í bardaganum... Ég komst því ekki í 32 manna úrslit en náði markmiði mínu að komast á 64 manna úrslitin á fyrsta GP heimsbikarmóti ársins.
Hér eru úrslitin frá mótinu:
http://fie.ch/Competitions/ResultsList.aspx?Key=EF5FC67B899065E8BB7035B64BB8A705
Ég endaði í 51. stæti af 135 keppendum. Ágætt bara :) Eftir riðlana var ég nr 49 sem þýðir þá að tveir fyrir neðan mig unnu sían bardaga í 64 manna fyrst ég færist niður um 2 sæti.
Næsta mót er í London 24.-25.febrúar. Ég verð við æfingar hér heima fram að því. Mikilvægt er að vinna úr reynslu æfingabúðanna í Póllandi og Frakkalndi og svo auðvitað mótsins með Nikolay þjálfaranum mínum. Þannig að nú verður unnið enn meira í þolinmæðinni og ákveðnum taktístum atriðum fram að næsta móti.
Hér eru nokkrar myndir frá mótinu:

Ég og Nikolay

Ég og Sandra Sassine frá Kanada


Ég og bresku vinkonur mínar, Jojo og Angela.
Þorbjörg Ágústsdóttir
10. febrúar 2012 klukkan 17:41
Það tókst!
Ég skylmdist alveg rosaleg vel! Hrikalega ánægð með mig!
Ég er komin í 64 manna úrslit á GP heimsbikarmótinu í Orleans :D Skylmdist frábærlega! Ég vann 4 af 6 bardögum í riðlinum og alla þá bestu! Ég hefði geta unnið alla í riðlinum -ég skylmdist eins og vindurinn. En tapað tveimur bardögum af skyndilegri óþolinmæði. En á heildina voru þetta mjög góðar skylmingar og bæði ég og þjálfarinn erum mjög ánægð með árangurinn. Það var mjög gott að hafa þjálfarann með sér á mótinu.
Til að komast í 64 manna þurfti ég líka að vinna mjög sterka bandaríska stelpu sem keppir fyrir Panama. Það tókst! Ég var í vanræðum framan af leiknum, staðan var 5-1 fyrir henni þegar mér tókst að snú við blaðinu. Staðan var 8-7 fyrir mér í hálfleik og svo vann ég 15-10 :D Tær snilld! Á morgun mæti ég svo sterkri rússneskri stelpu, Egorian. Mér hentar ágætlega að skylmast við rússana og hlakka bara til morgundagsins. Það eru annars allir á þessu móti og öll stóru löndin eru með fullan kvóta af keppenum, þ.e. átta talsins per land. Í heild eru 135 keppendur á mótinu. Þannig að meira en helmingurinn er út eftir fyrsta daginn. Mér tókst það og er áfram á morgun og fæ stig á heismlista! jeij!!
Góðar skylmingar og bónusinn að vinna! Eðal!
Ég þakka góðar hugsanir í minn garð í dag fébókar skilaboð undanfarna daga. Ég vona að þið haldið áfram að senda mér góða strauma á mogun :*
Heimasíða mótsins - fylgist með!
http://www.fencingworldwide.com/WAFechten/fechten/frameset.jsp
Þorbjörg Ágústsdóttir
10. febrúar 2012 klukkan 09:24
Þorbjörg Ágústsdóttir
09. febrúar 2012 klukkan 16:14
Nú er komið að fyrsta heimsbikramóti Ólympíuársins 2012. Þetta er GP mót og gefur fleiri stig en venjulegt heimsbikarmót. Þetta er gríðarlega sterkt mót og öll keppnis hótelin full! Ég er enn að bíða eftir að sjá riðilinn minn en keppnin byrjar kl 13 á morgun að frönskum tíma. Sendið mér góða strauma! Keppendur verða um 160 talsins! Risa mót sem sagt.
Ég er búin að vera í París í vikunni að æfa. Ég fékk að æfa með landsliðinnu í frábærri aðstöðu þeirra í INSEP (http://www.insep.fr/FR/Sports/Escrime/Pages/sport.aspx) og í klúbbnum US Metro. Æfingarnar gengu bara vel og ég hlakka til að keppa á morgun. Ég hefði þó auðvitað verið til í að vera hér lengur að æfa. Það skiptir gríðarlegu máli að fá að skylmast við fleiri og í öðru tempói.
Sendið mér góða strauma til Orléans!
Hér koma nokkrar myndir frá l'INSEP:



Þorbjörg Ágústsdóttir